Aðalvalmynd

Auglýsing

Síðasta bloggið ......

21. desember 2006 klukkan 07:03
Jæja þá er það góða Ísland á morgun, ég hlakka mikið til. Þetta verður því seinasta bloggið mitt á þessari síðu. Ég vona að þið lesendur góðir hafi haft gaman af misskemmtilegum og rugluðu sögum okkar Madridarbúa !! 

Hlakka til að sjá ykkur öll
J
 

Til ykkar sem ég sé ekki fyrir jólin vil ég óska gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Óska þess að þið eigið yndisleg jól í faðmi fjölskyldu og vina. Verið góð við hvort annað og njótið augnablikanna.  
1000000000000000000000000000000000000 Kossar og knús
Óskin
Ósk og Eyrún

Styttist óðum .......

18. desember 2006 klukkan 16:16
Jæja seinasta helgin okkar Madridarbúa búin og framundan eru 3 dagar í viðbót hér í Madrid. Helgin var stórfín, búin að segja ykkur frá föstudeginum,  munið berir slökkvuliðsmen! Laugardagurinn var svona: óskemmtileg reynsla í nuddi, góður indverskur matur, eyddum 100 evrum á kaffihúsi/bar en náðum samt að láta henda okkur út, sungum íslensk jóllög fyrir 20 sent og eitt bleikabeib lét ræna sig í þriðja sinn! Já alltaf fjör í Madrid J Í dag er síðan síðasti skóladagurinn okkar, á morgun verður pizzuveisla í boði Evu, á miðvikudaginn verður hausverkur vegna farangurs og á fimmtudaginn verður það Ísland vei vei J 
Sjáumst í vikunni
Ósk
 
Ósk og Eyrún

Ayer necesitamos llamar 112!!!!

16. desember 2006 klukkan 18:47
Já í gær var frekar fyndinn dagur, fyrst þetta með skólann sem Eyrún sagði ykkur frá og svo gerðist annað frekar fyndið. Eins og ég var búin að minnast á vorum við með smá kveðjuhóf hér heima í gær. Það heppnaðist bara ljómandi vel, allir í góðu stuði, reyndar smá drama en það er bara fyndið! Við vorum leystar út með dýrindisgjöfum frá Þýskalandi, t.d. bjórtunnu, súkkulaði, dvd, jólakökum o.fl. Já loksins komu þessir þjóðverjar færandi hendi og drukku ekki okkar vín hehe J  Þegar líða tók á kvöldið komu alltaf fleiri og fleiri gestir. Allt í einu förum við heyra svona hljóð eins og er í þjófarvörnum eða eitthvað þannig. Við hugsum já þetta er bara í einhverjum bíl í götunnni. En nei allt í einu fær Lára hringingu ,,Við erum 5 föst í lyftunni í stigaganginum ykkar” já lætin sem við höfðum heyrt var úr hjálpartakkanum í lyftunni. Við þjótum fram og sjáum kramið fólk í litlu lyftunni sem er aðeins fyrir 3 persónur. Hún er svo lítil að við förum ekki einu sinni fjórar í hana því við komumst ekki, höfum reynt það ;) Shit shit hvað áttum við að gera .... 5 kramdir í pínkuponsu lítilli lyftu og þetta var fólk á okkar vegum. Já í þokkabót þrír karlmenn og ein stór kona og ein lítil kona.  Klukkan var 2 allir nágrannarnir okkar steinsofandi. Og já þegar við fluttum, áður en ég og Eyrún komum hingað þá lentu Lára og Arna í húsverðinum og hann var brjálaður því þær höfðu átt að hafa skemmt lyftuna fyrsta daginn þeirra hér! Við vorum ekki í góðum málu. Eina í stöðunni var að dingla hjá einhverjum nágrönnunum. Við byrjuðum .. enginn svaraði.. önnur íbúð enginn svaraði.. enn önnur íbúð enginn svaraði en greinilega einhver sem kom og kíkti í gegnum gatið.. enn önnur íbúð enginn svaraði... enginn svaraði.. enginn svaraði..enginn svaraði.. enginn svaraði og svo reyndðum við síðustu íbúðina .. já loksins var svarað, strákur á efstu hæðinni, þar var partý, hann sagði okkur að eina í stöðunni væri að dingja hjá einhverjum nágrannanna og fá hjálp því ekki vissi hann hvað ætti að gera eða hringja í 112... úff shit hvað áttum við að gera ! Já eina sem var i stöðunni var að hringja í neyðarlínuna því fólkið var orðið kresý af súrefnisskorti! Úff sem betur fer var Daníel, spænskur strákur hjá okkur og hringdi í neyðarlínuna til að útskýra stöðu mála. Eftir 2 mín heyrðum við sírenuvæl og sáum líka þennan stóra slökkvuliðsbíl, úlala la það voru mættir sætir slökkuliðismenn berir að ofan til að laga lyftuna okkar og það tók þá ekki nema svona 1 mínútu að hleypa fólkin út. Já þeir vildu koma í partýið okkar en við vildum það ekki svo við brunuðum niður í bæ. Þar hittum við fúlan dyravörð, skrítið fólk og fórum heim. 

Jáhá það eru stanslaus ævintýri hér í stórborginni Madrid. Síðan í dag vörknuðum við við þessi orð ,,Islandesa sí Islandesa, sí sí chicas Islandesa sí sí” já nágrannarnir voru samankomnir á ganginn til að ræða íslensku stelpurnar sem baka stundum vandræði haha!! Vonum bara að vinur okkar Pablo (húsvörðurinn – klikkaður maður!!) banki ekki upp á í dag ... hmhm við þekktum ekki fólkið í lyftunni við bara björguðum því J 

Já í dag er síðan dekurdagur okkar stelpnanna – vá hvað ég hlakka til að fara í nudd.

 En jæja eigið góða helgi og sjáumst bráðum. 
Kveðja Ósk
Ósk og Eyrún

seis, sæs, seeis...dias

15. desember 2006 klukkan 22:23
Vöknuðum fyrir allar aldir í morgun, eða alveg klukkan 9 í morgun. Við mættum upp í skóla vel græjaðar fyrir daginn. Planið var að fara í Casa de Campo með áttavita og rata eftir honum. Við bölvuðum því að vera ekki með nógu miklar útivistargræjur með okkur vegna þess að það er orðið frekar kalt. Við smurðum nesti og gerðum myndavélar klárar. Við hittum kennarann og hina krakkana hjá skólanum, hann bullaði eitthvað á spænsku sem við skildum ekki, héldum kannski bara að hann væri að segja krökkunum eitthvað um ferðina. Svo sagði ein stelpa við okkur að vegna þess að það mættu ekki nógu margir nemendur á bílum til þess að keyra upp í Casa de Campo þá var bara hætt við ferðina. Kennarinn ákvað bara að endurtaka síðasta tíma í staðinn fyrir þá sem ekki voru þá. En við mættum þá þannig að við fórum bara heim. Spes.

Familian mín kemur eftir 6 daga. Hlakka mikið til.

Besos y abrazos,
Eyrún
Ósk og Eyrún

VIKA......

14. desember 2006 klukkan 16:56
Já eftir viku lendi ég á klakanum – rosalega hlakka ég mikið til J Ég hlakka svo til að hitta alla sem mér þykir vænt um, ég hlakka svo til að sjá öll jólaljósin því hér í Madrid eru þau ekki mörg (fólk skreytir ekki heima hjá sér með ljósum), ég hlakka svo til að sofa í rúminu mín og sjá fallega heimilið mitt skreytt fallega jólaksrautinu okkar, ég hlakka svo til að sjá nýju eldhúsinnréttingun mína, ég hlakka svo til að fá góðan mat, ég hlakka svo til að sjá alla litlu ormana sem eru búin að stækka og þroskast svo mikið meðan ég var í burtu, ég hlakka svo til að geta farið og sett kerti á leiðið hjá elsku pabba mínum og tengdamömmu minni heitinni, ég hlakka svo til að hitta elskulegau ömmu mína sem verður áttræð í janúar, ég hlakka svo til að geta spjallað við bestu mömmu í heiminum, ég hlakka svo til að getað knúsað systur mínar, ég hlakka svo til að geta hlegið með túttunum, ég hlakka svo til að fá smákökurnar hjá mömmu, Ernu og ömmu, og það sem ég hlakka mesti til er að hitta stóru ástina í mínu lífi ...... VÁ HVAÐ ÉG HLAKKA TIL J 

Já eftir akkurat viku klukkan 22:50 lendi ég á landinu góða. 

En jæja úr þessum væmniheitum þá eru síðastliðnu dagar búnir að vera mjög fínir. Í gær fórum við út að borða og svo var Lára okkar með tónleikar hér í stórborginni. Tónleikarnir voru æðislegir og spilaði hljómsveit með henni sem hún er búin að vera að æfa með hér í Madird. Hey og þið sem hafið ekki farið á tónleika með henni Láru verðið að koma með mér á nýju ári. Hún er svo assgoti góð stelpan J  

Mikið verður að gera hjá okkur næstu daga. Á föstudaginn erum við með smá kveðjupartý fyrir vini og vandamenn hér í Madrid. Á laugardaginn er síðan dekurdagur hjá okkur stelpunum, ætlum í klukkutíma nudd, út að borða og á pöpparölt. Vá ég hlakka til helgarinnar  J 

Til hamingju þið sem eruð búin í prófum – njótið jólafrísins J 
Sjáumst eftir viku
Óskin
Ósk og Eyrún

Langa helgin að taka enda !

10. desember 2006 klukkan 18:07
Jæja þá er langa helgin okkar að líða undir lok. Við fengum sem sagt 5 daga helgi hér í Madrid, því þessir elskulegu spánverjar eru svo duglegir að búa til hina og þessa frídaga! Já fyrsti frídagurinn sem sagt miðvikudagurinn fór í lærdóm hjá mér, fimmtudagurinn fór í búðir, sem endaði með því að ég kom tómhent heim L Ekkert gaman að fara í outlet – bara drasl þar! Fimmtudagskvöldið -  dálítið of mikið partý hjá okkur sem endaði með því að gestirnir voru tregir við að fara...... Föstudagurinn – allt lokað og því var ég bara heima í rólegheitum, skrifaði jólakort sem ég ætla að senda til Íslands á morgun. Laugardagurinn – heimsóttum Toledo eins og Eyrún sagði frá, hin fínasta ferð. Svo í gærkveldi skelltum við okkur Arna á þetta líka snilldardjamm J – hinn helmingurinn var bara veikur heima!
En jæja hafið það gott og þangað til næst :)

Óskin

Ósk og Eyrún

11 dagar...

10. desember 2006 klukkan 06:17
Við skelltum okkur til Toledo í dag, sem er lítill bær í klukkutímafjarlægð frá Madrid. Fórum með vinum okkar frá Þýskalandi. Bærinn er byggður á kletti og er þar af leiðandi eru bara brekkur þar. Göturnar voru líka litlar og mjóar. Ekkert ósvipaður Altea fyrir þá sem þangað hafa komið. Fyrsta verkefni okkar þarna var að finna stað til að borða á. Það gekk ekkert allt of vel því við vildum fæst af því sem þjóðverjarnir vildu. Þeir vildu ódýran mat, en við vildum bara fá góðan mat hvort sem hann var ódýr eða dýr. Ákváðum fyrir rest að fara inn á kínverskan veitingastað. Og þvílíkur VIÐBJÓÐUR. Ég fæ ennþá æluna upp í kok bara að hugsa um staðinn. Fengum stóra hárflækju með snakkinu okkar. Svo var líka hár í matnum. Og maturinn var bara viðbjóður. Nánast allt vont. Súkkulaði ísinn sem ég fékk í eftirrétt var skástur, samt ekki góður.

Við skoðuðum kirkjuna í Toledo, sem er ein af stæðstu kirkjum í heimi. Hún var rosa flott. Við fórum samt bara þrjár að skoða kirkjuna því þjóðverjarnir hættu snarlega við þegar þeir fengu að vita að það kostaði 6 evrur inn. Skoðuðum líka höllina utanfrá því hún var lokuð og einhverja eina byggingu í viðbót, hef bara ekki hugmynd um hvað hún var eiginlega merkileg fyrir. Það var ótrúlega kalt svo að við drifum okkur bara heim.

Já, það er sko kominn vetur í Madrid. Ég var gersamlega að frjósa í dag, þrátt fyrir að ég væri í nokkuð hlýjum jakka, með trefil, húfu og vettlinga. Arna hitti í gær Íslending á djamminu. Hann er að læra í Barcelona og var í fríi hérna í Madrid. Hann sagði að það væru svona um 20°C þar. Dáldið hlýrra en hér.

Hasta luego,
Eyrún
Ósk og Eyrún

Minna en tvær vikur ......... !!

08. desember 2006 klukkan 07:30

Jæja þá styttist nú heldur betur í heimför okkar Madridarbúa. Minna en tvær vikur í dag .... vá hvað tíminn flýgur áfram  :/  Ég hlakka mikið til nað koma heim og sjá heimilið mitt í jólaskrúðanum vei vei !

Loksins er maður búinn með öll verkefni sem skila á fyrir jól – það er yndislegt J Reyndar eigum við eftir að kenna einhverjar körfuboltaæfingar og segja frá þeim en það reddast eins og allt annað hér í Madird ;)  
 


Hafið það gott elskurnar mína, og þið sem eruð að fara í aðferðafræðipróf í fyrramálið – GANGI YKKUR VEL J

Sjáumst fljótt !

Kveðja Óskin

Ósk og Eyrún

Mamma komin og farin

06. desember 2006 klukkan 08:12
Jæja þá er mamma mín komin og farin. Hún kom til mín sl. fimmtudag og fór í gær. Mikið var gaman að fá hana til mín, við gerðum heilmikið, gengum út um allt, kíktum að sjálfsögðu í ansi margar búðir, fórum á markaði, fórum út að borða, fórum á tónleika með henni Láru og margt margt fleira. Já og haldið þið ekki að kella hafi innritað 35 kg og ekki rukkuð um krónu í yfirvikt. Það var eins gott að ég lét hana taka svona mikið af draslinu mínu og tróð í töskurnar hennar ;) Vei vei og nú get ég verslað enn meira því ég er með svo lítið dót eftir ! Hugsið ykkur ef Hemmi og mamma hefðu ekki tekið svona mikið af dótinu mínu, hefði ég aldrei komið því heim ........  Ég er allavega búin að senda 45 – 50 kg nú þegar til Íslands – já ég veit dálítil geðveiki en samt!  Takk fyrir komuna elsku mamma mín mikið var gaman að fá þig J 

Það er dálítið langt síðan ég skrifaði og það er vegna þess að það er búið að vera svo hrikalega mikið að gera. Vikuna áður en mamma koma kláraði ég vettvangsnámið mitt með stæl, skilaði fullt af verkefnum og var á haus. Núna fer þetta hins vegar aðeins að róast. Ég og Eyrún eigum reyndar eftir að skila einu verkefni til Íslands og ég á eftir að gera minn hlut í 12 blaðsíðna ritgerð sem við eigum að skrifa um körfubolta. Ég þarf að skrifa um æfingar sem hægt er að gera með börnum og auðvitað á spænsku, ég rúlla því upp, 2 blaðsíður á spænsku er nú ekki mikið fyrir snilling eins og mig hehe ;) En annars erum við stöllur komnnar í helgarfrí já 5 daga helgi fyrir okkur Madridarbúa. Á morgun er einhver frídagur og á föstudaginn líka, spánverjar eru svo yndislegir að þeir gefa þá bara líka frí á fimmtudaginn. Ekkert sérstak plan hjá okkur nema að njóta lífsins hér í Madrid þar sem það styttist óðum í heimkomu okkar. Ætli við kíkjum ekki á djammið og kannski ætlum við fara til Toledo sem er bær hérna rétt hjá.
 

En þar sem það er svo langt síðan ég skrifaði átti ég alltaf eftir að segja ykkur frá HELFVÍTIS KARATE KENNARNUM OKKAR! Þetta er pinku löng saga en þið verðið samt að lesa hana ;)Það var þannig að í seinustu viku tilkynnti hann okkur það að við ættum að fara í munnlegt próf á spænsku, já og prófið væri um karate, tennis og skylmingar. Við reyndum nú að útskýra honum og sannfæra hann um að við gætum engan vegin farið í munnlegt próf á spænsku .... en þar sem hann er svo bitur út í lífið og tilveruna þá vitnaði hann alltaf í dvöl sína þegar hann var Erasmus skiptinemi í Frakklandi og tók öll próf á frönsku. Já hann fattar það ekki að það er dálítið meiri munur á milli íslensku og spænsku en frönsku og spænsku. Sögðum honum að við hefðum engar glósur því við skildum ekki hvað hann væri alltaf að segja – reyndar nenntum við sjaldnast að skrifa en það er annað mál! Þar sem við erum ekki allveg að meika að fara í prófið og eyða seinustu dögunum okkar í að læra eitthvað um þessar íþróttir ákváðum við að reyna að tala við Erasmus skrifstofuna okkar í skólanum og reyna að fá þau til að tala við hann svo við fengjum að gera verkefni eða ritgerð í staðinn. Ein sem vinnur þar skildi ekkert í þessu og var mjög hissa því kennarar gerðu þetta nánast aldrei. Og hún sagði að hann hefði átt að tilkynna okkur þetta strax í upphafi annar. En helfvítis hin kerlingin sem ræður meira en hún sagði að kennarar gætu allveg gert þetta en hún skyldi tala við hann og athuga hvort við mættum gera ritgerð í staðinn. Hún sagði að það myndi  standa það sem hann myndi ákeða svo það eru MIKLAR líkur á að hann standi bara við prófið. Reyndar er það eiginlega orðið 100% því við ákváðum að tala við hann aftur í dag og spyrja hann hvort einhver væri búinn að tala við hann frá Erasmus skrifstofunni en að sjálfsögðu var enginn búinn að því, þetta fólk er ekki að vinna vinnuna sína eins og fyrri daginn!!  Og við spurðum hann aftur hvort það væri einhver möguleiki á að gera frekar verkefni en nei hann bara kom fram við okkur eins og við værum hálfvitar ..... já þessi ungi karlkyns kennari hefur aldrei þolað okkur frá byrjum og við hefðum mátt segja okkur það. Munið það var hann sem skammaði mig í fyrsta tíma eins og ég væri lítill krakki því ég talaði svo mikið!!! En allavega þá erum við allar búnar að taka ákvörðun og við ætlum bara að gefast upp og hætta í faginu og tapa þar með 2 einingum og mörgum klukkutímum sem við höfum eytt í þennan áfanga. En já stundum verður maður að gefast upp og við vorum allar sammála því, því við nennum ekki að eyða seinustu dögunum okkar í að vera að læra undir próf svo þetta var niðurstaðan! Mér fannst reyndar dálítið erfitt að kyngja þessu að gefast svona upp en jú stundum verður maður bara að gera það og njóta augnaliksins, því ekki nenni ég að eyða seinustu dögunum mínum hér í Madrid í próflestur !! Ég held reyndar að ég sé í góðum málum í sambandi við einingafjölda þar sem ég er að taka 11 einingar heima. Þá vantar mér bara 4 einingar upp á til að ég sé í fullu námi en ég held ég fái nú meiri en það, ef allt gengur upp ætti ég að fá 8 héðan frá Madrid svo ég verð með nógu margar einingar
J

Bestu kveðjur til ykkar allra sem eru í próflestri – það er yndislegt að vera ekki í því stressi núna og ég nýt þess. Gangi ykkur öllum sem allra best J
 
Kveðja Óskin
Ósk og Eyrún

Æðislegir tónleikar hjá henni Láru okkar

03. desember 2006 klukkan 07:53
Var að koma af æðislegum tónleikum hjá Láru. Hún er bara snillingur þessi stelpa. Og pabbi hennar stóð sig frábærlega á gítarnum með henni. 

Foreldrar Láru og Ósk eru komnir í heimsókn til okkar. Svo ég og Arna erum bara búnar að vera með tvö kósýkvöld. Elduðum sjálfar og allt. Keyptum okkur vídjóspólur og borðuðum snakk með svona doritos sósu sem maður setur inn í ofn. Ágætt bara að við vorum búnar að plana þetta því hún Arna lagðist bara í veikindi.

Þrátt fyrir veikindin vorum við Arna svo duglegar að læra að nú er hún búin með öll sín verkefni fyrir jól. Ég á eftir að klára eitt með henni Ósk í svæðalandafræði. 

Ótrúlega gaman að fara í vettvangsnám hér. Doldið öðruvísi en heima. Skólabyggingin var læst í bak og fyrir, þurftum að láta dyravörð hleypa okkur inn. Mér fannst kennslan hérna nú ekki einkennast af áhugasömum kennurum og nemendum. Mest bara töflukennsla þar sem kennarinn var í aðallhlutverki. Ekki var mikið af verkum eftir nemendur uppi á veggjum skólastofunnar. Kennararnir hérna eru líka miklu hvassari og strangari en heima. Mér fannst kennararnir doldið mikið vera að öskra og skammast í krökkunum. Svo var líka eitt sem er mjög ólíkt skólunum heima, nemendur voru stundum með nammi og snakk og svona með sér í nesti í skólann. Í skólanum sem ég og Arna vorum í var ekki mikið af spænskum krökkum, þarna var rosalega mikið af innflytjendum, oft bara 2-3 spænskir krakkar í bekk. Í þessum skóla var líka mikið um börn sem koma úr erfiðum aðstæðum, sum munaðarlaus t.d. Stundum var erfitt að fylgjast með kennslunni því maður hefur ekki fullkomin tök á tungunni en það var margfalt erfiðara að kenna. Ég bara svitnaði og svitnaði...úff...

Spánverjar eru skrítnir með margt. Nú er búið að jólaskreyta doldið hérna, meira að segja bara nokkuð mikið. Og mér finnst rosa gaman að horfa á jólaljósin hérna en ókosturinn við það er að spánverjar týma greinilega ekki að hafa kveikt á þeim lengi. Þeir hafa bara kveikt á þeim í nokkra tíma á dag, ekki á daginn þegar það er bjart og svo slökkva þeir svona um 11 leitið aftur. Skrítið. 

Hef ekki meira að segja í bili. Elsku bekkjarsystur, gangi ykkur rosalega vel í prófunum!!! 

Bestu kveðjur,
Eyrún
Ósk og Eyrún

Sendið okkur póst

Ósk - oskbaudu@khi.is

Eyrún Sif - eyruolaf@khi.is

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...